Þjónustufulltrúi vinnur við afgreiðslu, almenn skrifstofu- og þjónustustörf og verkefni tengd bókhaldi og skjalavinnslu. Starfið er 100% starf.
Hæfniskröfur:
- Verslunar eða stúdentspróf og/eða reynsla af skrifstofustörfum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Reynsla eða þekking á bókhaldi.
- Reynsla eða þekking á skjalavörslu er kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
Laun eru skv. kjarasamningum FOSS og Sambands ísl. Sveitarfélaga.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðni Pétursson bæjarritari gudni@olfus.is
Umsóknum skal skilað rafrænt á heimasíðu Ölfuss www.olfus.is fyrir 28. ágúst 2018. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Sveitarfélagið Ölfus er framsækið sveitarfélag og leggur ríka áherslu á góðan starfsanda á vinnustað. Þá er leitast við að auka möguleika starfsfólks til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Bæjarritari