Sem fyrr er lögð mikil áhersla á fjölbreytta viðburði þar sem allir geta fundið eitthvað hræðilega spennandi sem vekur áhuga og ef til vill svolítinn taugatrekking. Það verða draugahús fyrir bæði börn og fullorðna, flóttaherbergi (escape room), bílabíó, ónotaleg sundstund, skelfileg skrautsmiðja, kökuskreytingakeppni, grikk eða gott, hryllingssögukeppni í samstarfi við rithöfundinn Ævar Þór Benediktsson, Nornaþing og svo margt fleira. Samtals er um að ræða 16 viðburði auk ljósmynda- og skreytingakeppni.
Þollóween er samfélagslegt verkefni þar sem hópur af konum úr þorpinu leggur fram hugvit og mikla sjálfboðavinnu til að gera skammdegið skemmtilegra og búa til vettvang fyrir fólk á öllum aldri til að eiga saman ógleymanlegar stundir. Hátíðin er fjármögnuð í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus og aðra velunnara Þollóween.
Dagskrána og nánari upplýsingar er að finna á facebook síðu Þollóween https://www.facebook.com/tholloween
Dagskráin á Þollóween 2021
Baksíða