Dagana 21. -23. maí er skólanum breytt í fríríkið Þorpið og ganga nemendur í öll störf þorpsbúa.
Í þorpinu eru starfrækt kaffihús, bakarí, sultugerð og tívolí, málmsmiðja, rammalistafyrirtæki, saumastofa, tölvuleikjastöð, trésmiðja, listasmiðja, nytjamarkaður, frístund, banki, dagblað og kökuskreytingafyrirtæki.
Nemendur sendu inn atvinnuumsóknir á dögunum og var úthlutað störfum eftir óskum. Allir fá greitt fyrir sín störf í gjaldmiðli fríríkisins, svonefndum þollara, sem síðan er hægt að nota til þess að kaupa ýmsan varning og góðgæti í Þorpinu. Þorpið verður opið fyrir gesti og gangandi, fimmtudaginn 23. maí á milli kl. 11-13. Þá gefst fólki kostur á að skipta íslenskum krónum í þollara og njóta alls þess sem Þorpið hefur upp á að bjóða.
Við vonumst eftir að sjá sem flesta á opnun Þorpsins fimmtudaginn 23. maí.