Þorlákshöfn, kt. 420190-1909, óskar eftir tilboðum í öryggisgirðingu umhverfis 3,7 ha. tollgeymslusvæði sem verið er að útbúa í Þorlákshöfn.
Girðingin skal vera viðurkennd öryggisgirðing umhverfis tollgeymslusvæði ásamt rafstýrðu 6 metra rennihliði, þ. e. um 763,5 metrar af girðingu auk hliðs.
Í tilboði skal gera ráð fyrir uppsetningu og fullnaðarfrágangi. Verð óskast með virðisaukaskatti.
Tilboð skulu berast fyrir miðnætti, mánudaginn 9. apríl 2018, til hafnarstjóra á hjortur@olfus.is.
Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Jónsson hafnarstjóri í síma 691 6575 eða í tölvupósti.