Umhverfisverðlaun Ölfuss 2024

Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss hefur valið, fyrir árið 2024, fallegustu garða sveitarfélagsins. Þessi verðlaun eru veitt annað hvert ár og á móti því eru veitt verðlaun fyrir snyrtilegustu fyrirtækin og snyrtilegustu götuna. Garðarnir verða til sýnis fyrir gesti bæjarhátíðarinnar Hamingjan við hafið sunnudaginn 11. ágúst milli kl. 13 og 15. Þar er margt að sjá og margar hugmyndir munu örugglega kvikna en í öllum þeim görðum sem verða til sýnis má finna ýmislegt sem gleður auga og yljar hjarta.

Verðlaunin hafa þegar verið veitt og er niðurstaða nefndarinnar eftirfarandi :

Skálholtsbraut 1, Þorlákshöfn

Skálholtsbraut 1 tilheyrir elsta hluta Þorlákshafnar og er því partur af gömlu byggðinni, sú byggð verður til áður en Landgræðsla hefst og fer að skila árangri umhverfis bæinn. Því hefur verið gríðarleg vinna að halda snyrtilegan garð í árdaga byggðarinnar. Ársæll Guðmundsson hefur búið í Þorlákshöfn um langa hríð og hefur lóð Ársæls alla tíð verið til fyrirmyndar, snyrtileg og stílhrein.

Finnsbúð 9, Þorlákshöfn

Hjónin Sigríður Sveinsdóttir og Sigurður Bjarnason hafa lagt mikla vinnu í að gera lóð sína gríðarlega fallega, þau tilheyra nýrri byggð Þorlákshafnar. Umhverfi lóðar þeirra gleður augað hvar sem á er litið og er öðrum hvatning að fegra umhverfi sitt.

Gil, Ölfusi

Þorbjörg Lilja Jónsdóttir og Stefán Magnússon á Gili í Ölfusi byggðu sér hús á túni foreldra Þorbjargar fyrir um tuttugu árum síðan. Í upphafi þurftu þau að koma niður trjám í útjaðri til að búa til skjól á lóð sinni, eftir það lögðu þau allt kapp í lóðina umhverfis húsið. Lóðin þeirra, sem nú er orðin glæsileg, skartar skrautrunnum af ýmsum gerðum innan um grjóthleðslur og gosbrunna.

Það voru nefndarmenn í skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss sem afhentu verðlaunin á góðviðrisdögum í ágúst.

Geir Höskuldsson, formaður

Hjörtur Ragnarsson, varaformaður

Margrét Pollý

Hrönn Guðmundsdóttir

Baldur Guðmundsson

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?