ÚTBOÐ - Götulýsing Laxabraut

 Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið:

Götulýsing Laxabraut

Verklok eru 15.10.2024

Verkið felur í sér gerð götulýsingar með Laxabraut og Nesbraut. Grafa skal lagnaskurð, leggja götuljósastrengi,
fjölpípurör fyrir Mílu og einnig háspennustreng fyrir RARIK. Sanda undir og yfir strengi og endurmoka yfir lagnaskurð. Grafa skal fyrir ljósastaurum og tengiskápum og setja þá upp. Verktaki skal einnig setja upp ljósastauralampa og hreyfiskynjara á ljósastaura. Að lokum skal
tengja staura, tengiskápa og hreyfiskynjara.

Helstu magntölur eru:

Lagnaskurður
Jarðstrengir og vírar
Uppsetning ljósastaura
Uppsetning Lampa
5540 m.
30.890 m.
158 stk.
158 stk.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://olfus.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/b813b29c-d677-43c6-aba0-2dfc917b1eb0

 Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóð-
endur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 þriðjudaginn 11. júní 2024.

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn.
Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent
opnunaryfirlit rafrænt.

Byggingarfulltrúinn í Þorlákshöfn

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?