Viljayfirlýsing um uppbyggingu og rekstur Coda stöðvar í Ölfusi

Sveitarfélagið Ölfus hefur, ásamt Hafnarsjóði Þorlákshafnar, Carbfix hf., Coda Terminal hf. og Veitum ohf., samþykkt viljayfirlýsingu um samstarf varðandi markvissa könnun á forsendum uppbyggingar og rekstur athafnasvæðis til móttöku, niðurdælingar og bindingar CO₂ í Þorlákshöfn.

Með þessu samstarfi er stefnt að því að kanna hvort hagsmunir samfélagsins í Ölfusi fari saman með áætlunum Carbfix, Coda Terminal og Veitna um að þróa og innleiða nýja og umhverfisvæna lausn fyrir varanlega kolefnisbindingu með Carbfix tækninni, sem byggir á niðurdælingu koldíoxíðs í basaltberglög þar sem það steingerist og verður hluti af jarðskorpunni. Coda stöðin mun taka á móti CO₂ frá innlendum og alþjóðlegum aðilum og stuðla að sjálfbærri atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.

Verkefnið er þegar nokkuð vel kynnt í samfélaginu í Ölfusi enda hefur sambærileg starfsemi átt sér stað á Helliheiði í Ölfusi síðan 2012 án vandkvæða.

Áhrif og ávinningur fyrir samfélagið
Með uppbyggingu Coda stöðvarinnar í Ölfusi kunna að skapast fjölbreytt atvinnutækifæri, auknar tekjur fyrir sveitarfélagið og aukin nýting hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn.  Stefnt er að því að tryggja að verkefnið samræmist stefnu sveitarfélagsins um sjálfbæran vöxt græna hagkerfisins og stuðla að nýsköpun á sviði loftslagsmála.

Aðilar viljayfirlýsingarinnar munu á næstu mánuðum vinna að stefnumörkun, leyfisferlum og samskiptum við íbúa og hagaðila. Sérstök áhersla verður lögð á gagnsæi og samráð við samfélagið, og verða reglulegar kynningar haldnar um framgang verkefnisins.

Viljayfirlýsingin í heild sinni er aðgengileg hér:  

Sveitarfélagið Ölfus hvetur íbúa og aðra áhugasama til að kynna sér verkefnið og taka þátt í umræðunni um þessa mikilvægu þróun í umhverfismálum og atvinnusköpun.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?