Íbúafundur um skipulag var haldinn 22. maí síðastliðinn
Síðastliðinn mánudag var haldinn íbúafundur þar sem kynntar voru breytingar á skipulagi í sveitarfélaginu.
Fundurinn var vel sóttur og góðar umræður mynduðust.
Tilkynning: Lokað á bæjarskrifstofum Ölfuss og í Íþróttamiðstöðinni á morgun, miðvikudag
Bæjarskrifstofur Ölfuss verða lokaðar eftir kl. 12:00 á morgun, miðvikudaginn 24. maí.
Einnig verður Íþróttamiðstöðin lokuð frá kl. 8:00 - 16:00 á morgun, miðvikudaginn 24. maí vegna skyndihjálparnámskeiðs starfsfólks.
Kvittað upp á Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn 2018
Á föstudag undirritaði hann samning um að 21. Unglingalandsmót UMFÍ verði haldið í Þorlákshöfn verslunarmannahelgina 2018. Undir samninginn skrifuðu jafnframt Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Guðríður Aadnegard, formaður Héraðssambandsins Skarphéðinn (HSK). HSK verður mótahaldari Unglingalandsmóts UMFÍ í Þorlákshöfn 2018.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kíkti í heimsókn á bæjarskrifstofur Ölfuss
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávrútvegs- og landbúnaðarráðherra kom í heimsókn á bæjarskrifstofur Ölfuss í gærmorgun ásamt fylgdarliði.
Eftir heimsóknina fóru Gunnsteinn bæjarstjóri og Katrín markaðs- og menningarfulltrúi í heimsókn í nokkur fyrirtæki í Þorlákshöfn.
Grunnskólinn í Þorlákshöfn fékk afhentan Grænfánann í þriðja sinn
Grunnskólinn í Þorlákshöfn fékk afhentan Grænfánann frá Margréti Hugadóttur fulltrúa frá Landvernd. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í blíðskaparveðri í morgun.